Þá er búið að
pakka og afhenda íbúðina, og ekki laust við mikinn söknuð þar.
Siggi fór með Norrænu
og ferðin gekk bara vel. Hann hringdi spes í mig til þess að segja mér að það
væri verið að selja sænskt um borð og gaurinn ekkert smá ánægður með það.
/>
Ég er búin í
þessari aðgerð og ég er bara fín lítill sársauki svona yfirleitt. Læknirinn segir
að ég megi líklega fara út í vikunni 18-22 ef allt gengur vel en ég er að spá í
að fara í vikunni 25-29
og fljúga þá til köben og vera smá hjá Þórey systir og
Daníel og auðvita Gísla líka. Ég er í kef núna hjá tengdó og verð fram á
þriðjudag en þá þarf ég að fara aftur til Dr. vonum bara að það eigi eftir að
fara vel.
/>
Veit eilla ekki
hvað er búið að ske meira nema þá......
/>
Emil og Þóra
eignuðust prinsessu á þriðjudaginn síðasta hún var 16 merkur og alveg hrikalega
sæt. Við fengum að fara og kíkja því að
Siggi var nottla að fara daginn eftir eins með Mása og Evu Dís. />
Það gat bara
ekki komið ný færsla án þess að allavega eitt barn væri búið að fæðast.
/>
En held að ég sé
ekki að gleyma neinu...
/>