Súkkulaði

14.09.2008 16:09:40 / honeybonn

Fyrsta DK Bloggið

Jæja þá er komin vika síðan ég kom en ég stoppaði hjá Þórey systir í 4 daga og það var algjört æði :haha: Við fórum út um allt og skoðuðum þessa helstu túristastaði og borðuðum danskar pulsur:haha: Eins fékk ég að dúllast alveg fullt með Daníel mér til mikillar gleði :haha::haha:
Svo kom ég til Horsens seinni partinn á fimmtudag og fékk þá loksins að sjá híbíli mitt fyrir næstu árin og ég get ekki sagt að það hafi verið hoppað af gleði :s en það er s.s. ekki ljós inni í svefnherbergi né inni í stofu og það er bara ekkert gert ráð fyrir loftljósum :o En við þurfum að reyna að fjárfesta í nokkrum lömpum svo að hægt sé að t="on">lace w:st="on">geralace> eitthvað inni í stofu eftir að það dimmir (kl 7) annað en að hanga í tölvunni og horfa á TV . En það sem búið er að kaupa hérna inn er rúm, svefnsófi, PÍNULÍTIÐ sófaborð og svo sýnishorn af hillu undir TV :$ Við eigum ekki einu sinni stóla. En Siggi er glaður þar sem að hann fær þá að borða fyrir framan TV :lol:. En á föstudaginn fórum við á skólabarinn en hann er án djóks í 1 mín fjarlægð 8| s.s. hinum megin við götuna, en það er ódýrara að kaupa bjór þar en úti í búð 8| Svo í gær þá var bara svona leti dagur hjá okkur þar sem að við bara kúrðum allan daginn og horfðum á TV ekkert smá næs og alveg komin tími á svoleiðis hjá okkur :haha:
Svo í dag fórum við til Árhus til hans Elvars en við vorum að fara með örbylgju ofnin hans til hans því að þegar að hann var að flytja þá gat hann ekki tekið allt dótið sitt með sér ;) Svo erum við búin að taka létta taki til syrpu (alveg hrikalega spennandi) og sytjum núna hlið við hlið í tölvunni gg spennandi það líka :lol:
En ég er búin að taka fullt af myndum en ég á eftir að skoða gmail síðuna betur og sjá hvernig þetta er og þá get ég deilt með ykkur öllum 3 sem lesa þetta allt það sem ég sé :haha:
/>

En ætla að fara að pirra hann Sigga smá og elda svo mat
Later :haha: />

pabbi skrifaði
Það er gott að skeifan er að lyftast og brúnin með . ps, gott ráð .ef þú ert með skeifu á vörum , stattu þá á höndum
Heiða skrifaði
hahaha skal reyna að muna það ;)
Brynja Bjarnfjörð skrifaði
Elskulegasta frænka. Gott að þú ert komin þarna út til your loved one þó það sé án græns kristals... ;) nú geturðu munað hversu hugguleg íbúðin mín var með alla sína lýsingu. Annars eru réttir og leitir núna um helgina. Lætur vita ef þú ætlar að taka eina heiði með mér!!?!
Didda skrifaði
Hæ honeybonn. Ég er ALLTAF að gleyma blogginu þínu! Finnst alltaf eins og það sé sukkuladi.blogcentral :s Ég var næstum því farin að senda stjórnendum blogcentral mail um daginn og ausa úr skálum reiði minnar ;) En ég er allavega farin að sakna þín... Það er hundleiðinlegt að þú sért farin.. Þó við séum latar að eðlisfari og nennum ekki að hittast oft þá var þó alltaf möguleiki á því, en ekki núna.. :( Glatað! En ég kem út næsta sumar með alla familíuna (og þá meina ég ALLA familíuna) þannig að það er frábært að það tekur ekki nema 1 mínútu að rölta á barinn, ekki veitir af ;) En jæja, vertu dúleg að blogga :) Kærlig hilsen ;) Bið að heilsa Sigga!
Þórey & Daníel skrifaði
ég er nr 4 sem les bloggið:D
Heiða skrifaði
hahaha ég er vinsælli en ég hélt ;)
Georg Bjarheiðarson skrifaði
Þú ert mega vinsæl babe;)
Hafrún skrifaði
jább ég byrja bara núna að bíða eftir að þú látir sjá þig á Réttarballi :) kv úr N1 Hólmavík
Heiða skrifaði
Nei nei Hafrún vera sár ekki bíða hahahahahahhahahahaahha
Sætabrauð skrifaði
Til hamingju með fluttninginn... spennandi tímar framundan :) Annars er ég frekar móðguð að það hafi ekkert verið minnst á 2 tíma skype samtalið okkar (við ELSKUNA þín) í þessu bloggi þe. þarna inn á milli kúr með Sigga og ferð til Árhus !!!
Íris María skrifaði
Ég er hérna auðvitað líka!!! :D fáðu þér einn danskan öl fyrir mig og nóg af danskri spægjipylsu á rúnstykki þá er lífið yndislegt þarna úti ;)
love jú gæs ;)
gudrun vonda systir skrifaði
hæ loksias skild gusti tolvuna eftir her eg var buinn ad reina ad na sambandi vid siman tinn a ljosunott sidan var min audvitad sofand tegar tu varst ad hringja en svo vastu bara farinn i flugvelina tegar eg vaknadi og eg aulinn er en hringja i siman tinn hahahaha ekki buinn ad atta mig a ad tu sert farinn snoktsnokt en mins saknar tins svo mikid og eg er naturulega buinn ad lenda i ymsu ens og vanalega og med helling af frettum godum og vondum en love you
Sirrý skrifaði
...ég kíkji alltaf. Stúdenta íbúðir eru ekki alltaf þær bestu en það er hægt að gera þær mjög kósí og heimilislegar. 'o þeir gömlu góðu dagar. Ég á tvær vinkonur íÅrhus svo næst þegar ég kíkji á þær verð ég að kíkja á þig líka... :)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 409 dögum
Sædís kemur til mín!!!!!
Klukkan
RSS tengill
Ef þér leiðist :o)
Myndbönd
Dagsetning
18. mars 2010