Súkkulaði

13.01.2009 18:59:26 / honeybonn

Þá er ég búin að fara til Íslands og koma til baka....

Ég byrjaði á því að fara til Svíþjóðar til Þóreyjar systir og stoppaði hjá henni í 2 daga og vá hvað það var gaman að sjá hana, Gísla og litlu bjútýbolluna mína. Ég fór svo í göngutúr með Þórey og Björk og omg ég held að hún hafi ætlað að ganga frá mér en gangan endaði í þvílíkri kraft göngu þar sem að báðir prinsarnir vöknuðu og voru sko SVANGIR þá var víst ekkert annað að gera en að klífa fjöll og firnindi ( mói við umferðagötu) og þar sem að ég hafði varla farið út úr húsi í 3 mánuði og hvað þá hreyft á mér rassgatið þá var ég bara næstum því dáinn!!!! />

En það var algjört æði að hitta alla sem ég hitti þó svo að ég hafi ekki náð að hitta suma og alla ekki nógu oft.

Þegar að ég lenti þá fór ég beint heim til mömmu en þessi elska hafði eldað fyrir mig SALTKJÖT OG BAUNIR!!!! En þeir sem þekkja mig vita að ég fæ fátt betra en það og ummmmmmm hvað það var gott. Hún eldar það líka alveg eins og ég vil hafa það en þá er þetta svo salt að það þarf að hafa bjórkút með röri við hliðina á sér allt kvöldið hahaha. P.s. mamma það er líka alveg hægt að senda til DK hahahahah blikk blikk
/>

En ég gerði margt og mikið annað en að borða saltkjöt og baunir og má þá sérstaklega nefna fyrstu helgina mína en föstudagurinn var Mojito kvöld hjá mér og Sædísi og omg hvað það var gaman og mikið gert!!! (rauður varalitur og vampíru skikkja) />

Svo á laugardaginn komu stelpurnar mínar heim til Sædísar (allar nema Íris vegna óviðráðanlegra aðstæðna) en Sædís hélt upp á afmælið/heimkomu partý fyrir mig og vá hvað ég skemmti mér vel. En við enduðum niðri í bæ á Palla tónleikum eða allir nema Didda en ég ætlaði að hringja í hana eftir 10 mín. En gaman + palla tónleikar + FULLT af áfengi = tímaskekkja :s />

Ég fékk að jóla skreyta en ég jóla skreytti allt hátt og lágt heima hjá pabba. Ég tók s.s. 4 fulla kassa af jólaskrauti og stakk því út um allt hús þannig að á endanum leit stofan út eins og jóla búð. />

Svo voru það jólin en þau voru þau rólegustu sem ég hef nokkur tíman upplifað  en það vantaði ömmu, afa og systur mína og var þeirra sárt saknað. />

Annars notaði ég jólin til að vera með fjölskyldunni og ég og amma brölluðum mikið saman. En við ákváðum að hafa bíó kvöld og enduðum svo kvöldið á því að vera að gera heita og kalda rétti um klukkan 3 aðfaranótt annan dags jóla. Svo gisti ég í afabóli en ég hef ekki gert það síðan ég var krakki og amma hafði orð á því að það væri rosalegur munur á svefn venjum mínum, en þá átti hún við að hún vaknaði ekki með fótinn á mér upp í munninum á sér eða eitthvað álíka hahahah. />

Áramótunum eyddum við svo með Sædísi og Ómari en þau buðu okkur í hrikalega gott hangikjöt og var þetta í fyrsta skipti sem ég borða það á gamlársdag. En þar sem að prinsessurnar eru með svo ólíkar matarvenjur þá þurfti að bjóða upp á bæði heitt og kalt hahaha. Svo var skálað í Asti Gancia en ég hef ekki fengið svoleiðis síðan ég fór út og vá hvað það var gott!!! En það fæst víst ekki hérna, eða þá ég blind að reyna að leita af því. />

Þórey systir kom svo 2. í jólum og vá hvað það var gaman að sjá þau og gaman að sjá hvað mamma var glöð að hafa öll börnin sín og barnabarn heima. />

Svo Sunnudaginn áður en við heldum út aftur þá var einskonar kveðjuveisla heima hjá mömmu og pabba hans Sigga sem byrjaði kl 11 með hádegisverði ( ég var bara búin að sofa í 3 tíma þar sem að ég hafði eitt nóttinni í það að kveðja Ástu og Guðrúnu ásamt SMÁ áfengi ( takk fyrir að bjarga mér Núsi bró)) en fólkið mitt og Sigga var svo að koma smátt og smátt allan daginn og kveðja. Ég er ekki frá því að þetta sé miklu betra heldur en að hitta einn og einn því að þá fer ég allavega ekki að gráta fyrir framan alla, þó að tárin hafi nú samt alltaf komið í augun við hvert knús... />

En síðan ég kom til baka hef ég sótt um vinnu við að skúra en það er ekkert fast laust þannig að ef henni líst á mig þá fæ ég líklega bara íhlaupa vinnu til að byrja með. En það er víst alstaðar þannig hérna núna. Ég virðist ekki fá neitt fast heldur bara vinnu þegar að aðrir þurfa frí... />

Ég fór svo í osta veislu á sunnudaginn en þá átti hver að koma með sinn uppáhaldsost og þar sem að ég var búin að vera að tala um Mexikó ostin við manneskjuna sem var að halda þetta þá þurfti ég að koma með hann L og viti menn hann var sá eini sem kláraðist!!!!! ( ekki það að ég hef örugglega borðað meiri hlutan af honum hahah) />

En annað í fréttum : SÆDÍS KEMUR EFTIR 21 DAG!!!!! Og shitt hvað ég er spennt. />

Ég er í raun ekki búin að plana mikið nema þá að það verður farið á skólabarinn á fim, fer með hana í búðir og auðvita HM og svo verður væntanlega drukkið svona eins og ca 1-2 Mojito, ekki mikið meira en það samt hahahah />

En ég ætla að segja þetta gott í bili. Held að ég hafi ekki gleymt neinu eða vona ekki. />

Þangað til næst.... Hilsen />


» 9 hafa sagt sína skoðun

16.11.2008 21:58:50 / honeybonn

Ekkert nýtt

Ekki ennþá komin með vinnu, fer nánast ekkert út úr húsi, þannig að ekkert nýtt
Guðrún ég er búin að vera með nýja nr mitt skrifað á msninu í rúma 2 mánuði, en ég á ekki innistæðu til að senda þér það
Hilsen

» 4 hafa sagt sína skoðun

26.10.2008 19:23:32 / honeybonn

Atvinnulaus aumingi í DK...

Ég ákvað að breyta lúkkinu á síðunni minni fyrir hann Daníel því að við eigum það nebbla sameiginlegt að vera ansi hrifin af sultu :D />

En jæja ég er ekki ennþá byrjuð að vinna en konan sem átti að hringja í mig síðasta mánudag hringdi víst en síminn minn hringdi ekki, þannig að ég fór bara upp á þetta blessaða hótel á miðvikudaginn því að ég átti að hitta hana þá.  Þá var konan víst bara veik og ég bara what!!! En ég ætla að reyna að fara þangað bara á morgunn því að hún hlýtur að vera búin að vera veik þá... />

Ég var svo á fundi áðan uppi skóla hjá Sigga en Svavar Gests kom og var svona að útskýra í smáatriðum ástandið á Íslandi en ég get sagt það að ég var í raun engu nær en þegar að ég les bara mbl.is... />

Siggi var að vísu ekki með mér því að hann fór eitthvert að spila og án djóks þá vissi hann ekki hvert þannig að hann gat ekki sagt mér það. Ég bíð s.s. spennt eftir því að hann komi heim svo að hann geti sagt mér hvar hann var hahaha. />

Það er svo búið að breyta klukkunni en núna er ég bara klukkutíma á undan sem er rosa næs þegar að ég er að tala við fólkið heima og þarf þá ekki að vera til um kl 2 á msn heldur bara ca 1 hahahah />

Svo vil ég segja að ég sakna Guðrúnar systur alveg rosa og ég get ekki beðið eftir að koma og sitja í sófanum hennar og kjafta og blása 1 reyk á hana heheheh en ég vil samt sjá þig meira á msn þannig að þú verður bara að hertaka tölvuna hans Gústa eða láta hann setja upp msn hjá þér, það tekur hann ca 10 mín. />

Og svo vil ég segja henni Sædísi minni að ég er ekki alveg að meika þetta ekki msn á kvöldin því að það er svo rosalega mikið að gera hjá henni í vinnunni á daginn að hún getur ekkert spjallað þannig að mér finnst alveg lámark að festa allavega 1 Skype kvöld í viku!!!! />

Og Íris mín ég vil sjá þig meira á msn því að þetta msn í símanum er ekkert alveg að virka, þú færð ekkert af msn sem ég sendi þér og ég get alveg orðið brjál því að stundum þarf ég svoooooooo mikið að segja þér eitthvað og þá bara nei engin Íris L />

Held að reiðilestri sé lokið í bili, en ég vil sjá úrbætur og ekki seinna en strax. />

En svo er ég að komast í jólaskap ÉG!!!!! Ég er ekkert jólabarn samt og það er ekki nema október og það er nákvæmlega EKKERT sem minnir á jólin hérna. Við erum að tala um það að mig langi til að fara að hlusta á jólalög og fara að föndra jólakort og skraut. Ég sem vanalega skrifa einhver 5 jólakort og það er það eina sem ég geri svona jóla. Meira að segja í fyrra þá var Sædísi nóg boðið og keypti jólaskraut og kom með það til mín hahah en það er ekkert að marka hana því að hún á heima í svona jólalandi um jólin. Ég er alveg pottþétt á því að hún sé með meira skraut heldur er selt í búðunum :D en ég er allavega alveg að halda í mér að hlusta ekki á jólalög núna sko (er samt alveg búin að hlusta á 2) />

Brynja frænka er svo búin að vera að senda mér fullt af nýrri tónlist sem ég þarf að fara að fara að hlusta á en ég er ekki búin að vera í svona uppgötva nýja tónlist skapi upp á síðkastið heldur vil ég nánast bara hlusta á eitthvað svona gamalt þar sem að ég kann textann og get sungið hástöfum með og surprise þá er það eingöngu íslensk tónlist sem ég er búin að vera að leita í, er t.d. núna að blasta Ljúfa líf með honum Páli Óskari. Það kemur manni alltaf í gott skap. />

Já svo allir þessir broskallar sem eru hér og þar ég setti þá ekki heldur koma þeir bara sjálfir og ég get ekki einu sinni sjálf sett þá þar sem ég vil því að fierfox crassar bara... />

Held að það sé svo ekkert meira í bili nema þá að minna á að það eru bara 52 dagar í mig :D:D:D:D />

Hilsen fra Horsens />

>

>


» 7 hafa sagt sína skoðun

19.10.2008 22:00:35 / honeybonn

Leti leti leti

Jæja þá er vika letinnar á enda en við skötuhjúin erum varla búin að hreyfa okkur. />

Siggi er búin að laga bílinn en hann var bilaður í eina og hálfa viku en um leið og hann fékk réttu verkfærin þá var hann ekki nema um 10 mín að laga hann. Siggi var reyndar að spila 2 leiki í síðustu viku og var hann stiga hæstur í báðum leikjum eða með 28 stig í þeim fyrri og svo 24 í þeim seinni algjör hetja þessi elska. Ég tók fullt af myndum og myndböndum af fyrri leiknum og var ein sett inn á http://haukar.is/karfa/3594-haukafolk-a-erlendri-grundu en þetta er mynd af Sigga og Dóra Karls sem hann var að spila með áður í Njarðvík en núna eru þeir að spila í Horsens BC. (amma þú ýtir á þetta appelsínugula til að skoða myndina :haha: ) />

Svo komu Inga, Dóri og Bjarmi í heimsókn um síðustu helgi og það var alveg frábært að fá kunnuleg andlit í heimsókn. En þau komu heldur ekki tómhent en þau komu með flakkarann minn og vá hvað það var búið að vera mikill söknuður þar. En þau komu svo að sjálfsögðu líka með íslenskt nammi og vá hvað það var kærkomið. />

Svo á morgunn fæ ég vonandi símtalið í sambandi við vinnuna og eins þarf ég að fara í bankann og skrifa undir að ég vilji fá bankareikning en ég átti víst að gera það fyrir 2 vikum en stein gleymdi því. Þetta verður í fyrsta skipti sem ég fer eh svona ein niður í bæ. (Ef ég verð ekki komin á msn annað kvöld sendið þá leitar flokk) />

Hef held ég ekkert meira að segja en ég set inn hvernig fer með vinnuna... />

Hilsen fra Horsens />

>


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.10.2008 01:37:52 / honeybonn

Ekki danskur ríkisborgari :D

Þórey systir sagði mér að ég yrði ekki danskur ríkisborgari fyrr en ég væri búin að vera hérna í 7 eða 10 ár þannig að ég er ennþá Íslendingur fjúff :lol:
En konan sem er yfir vinnunni sem er kannski búið að redda mér ætlar að hringja í mig þar næsta mánudag því að þar sem að Danir vinna svo mikið :$ þá verður nánast allt lokað í næstu viku og þar á meðal allir skólar þannig að Siggi verður heima með mér  :haha:
Svo er Inga að koma en hún kom til Dk í dag og ætlar að vera í nokkra daga hjá Bjarma og ætlar að kíkja hingað í heimsókn í leiðinni. Hún er líka að koma með flakkarann minn og eh pakka frá tengdó :haha: jiiii er sko hrikalega spennt :haha:
Nákvæmlega ekkert annað búið að ske nema þá að ég er búin að kíkja einu sinni á barinn og svo eins sinnni eða tvisvar út í búð...
Þannig að hilsen fra Horsens



» 3 hafa sagt sína skoðun

30.09.2008 18:54:10 / honeybonn

Danskur ríkisborgari...

Ég fékk gula kortið loksins í gær þannig að ég er orðin danskur ríkisborgari (úff hljómar skringilega):s þá er bara að fara að tala við þennan kall sem að rekur þetta blessaða hótel. En ég náði mér í kvef í gær ekki alveg sátt við það var nebbla svo ánægð því að Siggi var lasinn í síðustu viku og ég smitaðist ekki, en ég er víst bara meira eftir á en ég hélt og næ mér meira að segja í kvef seinna. 8| />

Um helgina kíkti ég með stelpunum á barinn sem var alveg ágætt bara en Siggi var eftir heima því að hann þurfti að spila á laugardeginum (hann bæ ðe vei vann) en hann kíkti svo í eh körfu partý um kvöldið og ég var bara heima. />

En við tókum rómantíska göngu í “skóginum” hérna í síðustu viku og við tókum myndavélina með og Siggi þessi asni segir mér að klifra í eh tré því hann ætlar að taka mynd og ég bara what!!! Þetta er sko hálf dautt tré og það á eftir að brotna ef ég sest á það og geng að því og ýti aðeins í það til þess að sanna mál mitt. Ég tók 2 skref í grasinu og ég fékk 1 stórt bit framan á fótinn og 2 aftan á og þetta allt á inni við 3 sekúndum.8| Svo löbbuðum við lengi lengi meira og Siggi stríðir mér eins og vanalega með eh stráum og segir að það séu köngulær á mér (það er FULLT af þeim þarna og þær svífa niður úr trjánum) og ég alveg í panik (er kannski ekki mikið  fyrir útivist, allavega ekki pöddu hlutann) hann labbaði líka á allavega 2 vefi :lol: Svo sáum við eh steipu klump og hann sagði mér að standa upp á honum og ég bara ok en svo kom alveg ógeðsleg lykt og ég stökk af þá hló hann og hló því að þá hafði þetta verið eh svona skólp dót. 8| />

Við erum svo ennþá ljóslaus og ennþá eftir að kaupa skápa inn á bað og borðstofusett. Ég kem svo heim 17. des eða eftir 78 daga en það er ekki ennþá komið í ljós hvenær ég fer aftur en ég var að fatta að ég á ekki einu sinni far aftur til Dk en það verður að redda því eh vegin. :$ />

Svo eru allir heima alveg voða busy eða ekki með net þannig að ég er eilla ekkert búin að heyra í neinum upp á síðkastið nema elskulegri frænku minni henni Brynju en hún er búin að vera iðin við að halda mér félagsskap og leyfa mér að röfla, og er einnig búin að vera að senda mér tónlist og þess háttar svo að ég geti verið með puttann á púlsinum þó að ég sé í baunalandi. Hvar væri ég án Brynju???? ;) />

En talandi um Brynju þá er mig búið að langa svoooooo í köku undanfarið (Brynja=ostakaka) að ég er að springa og langar þá helst í eh marens, rjóma, SÚKKULAÐI bombu ( þegar að ég kem heim þá er ég ný búin að eiga afmæli og eiginlega ætlast til þess að einhver baki fyrir mig) en ég er líka strax farin að sakna íslenska matarins því að maturinn hérna er ekkert spes. Ég fór þar síðustu helgi út í búð því að það átti að vera svona subbu hádegismatur s.s. egg beikon brauð og bakaðar baunir en NEI NEI það var EKKI til bakaðar baunir!!! Hverskonar sunnudags hádegis subbu matur er ekki með bökuðum baunum!!!!! Svo langar mig svoooooo í SALTkjöt og baunir þegar að ég kem heim og ég ligg á bænum í von um að hún móðir mín eldi svoleiðis fyrir mig vínk vínk mamma.:haha::haha::haha: />

En já ég þarf að fara að elda enda orðin svöng eins og má kannski sjá á síðustu línunum heheh og svo er Siggi að fara að koma heim af æfingu />

En allavega bæ í bili />


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.09.2008 18:58:55 / honeybonn

Ekki mikið búið að ske síðan síðast

Ég er ennþá heima þar sem að pappírarnir mínir eru ekki ennþá tilbúnir en þeir ættu að koma í þessari viku. />

Ég er þar að leiðandi ekki búin að gera mikið annað en að hanga hérna heima. />

En um síðustu helgi fórum við á Íslendingaballið og það var alveg fínt nema frekar rólegt þannig að ég ákvað að skella mér með Áslaugu og vinkonu hennar niður í bæ (hefði átt að sleppa því bara ) en það var svona skít sæmilegt. Við fórum semsagt á heitasta staðinn þarna og það er svo strangt inn að það þarf að taka af þér fingrafarið og svo er tekinn mynd af þér og ég veit ekki hvað og hvað og svo kostar alveg heilar 50dkr þangað inn sem er nottla bara rán núna.8|En við fórum þarna inn og shitt hvað mér leið eins og nunnu!!!! Ég var bara í plein bol með ermum sem sýndi enga skoru og í venjulegum gallabuxum. En það var sko EKKI að virka þarna. Þarna inni voru allar stelpur í SVOOOOO stuttu pilsi og í svo flegnum bolum að það sást niður á maga.8| (og ég hélt að íslensku stelpurnar væru slæmar en shitt) en svo eftir það fórum við og fengum okkur pizzu og vá hvað hún var alls þess virði ummmmm en það kvöld smakkaði ég s.s. mína fyrstu pizzu með dressingu, smá skrítið fyrst en svo algjört æði.:haha::haha::haha: />

En annað að frétta úr litla kotinu okkar, við erum ekki ennþá komin með ljós og ekki hillur eða neinar geimslur inn á bað sem gerir það að verkum að allt baðdótið er ennþá ofan í ferðatöskunum. Við erum heldur ekki búin að kaupa okkur skenk og þar að leiðandi eru ennþá öll albúm og ljósmyndir og allt svoleiðis dót ennþá inni í eldhússkápunum, sem þýðir það að ég hef ekki ennþá náð að koma öllu fyrir á réttum stöðum í eldhúsinu. Já svo eigum við líka eftir að kaupa borðstofu sett en þangað til eigum við enga stóla heldur. />

En svo að ég hætti nú að röfla aðeins þá eignuðust Kristín og Gunni litla prinsessu núna í fyrradag og óska ég þeim innilega til hamingju með hana. />

Ég er svo líka búin að tala FULLT á skype við alla og þess ber að nefna að ég er búin að eiða löngum, áhugaverðum og skemmtilegum klukkustundum á skype við að tala við hana Sædísi mína (vínk vínk) hahahah.:haha: En hún ætlar að koma í heimsókn til mín 3-6 febrúar og samkvæmt síðustu talningu þá voru það 133 dagar þangað til:haha::haha::haha:

Svo kom hún Guðrún á msn í gær en hún náði að “stela” sér tölvu þessi elska til að getað talað við stóru systu sína, og það var alveg frábært að komast aðeins út úr veruleikanum og fá að hlusta á nokkrar sögur frá henni því að það er ALDREI rólegt í kringum hana Guðrúnu hahah.  En  síðasti klukkutíminn  fór að vísu bara í að kenna ömmu hennar á msn....:haha: />

Svo ætla ég að senda kvörtun til hennar Írisar minnar en ég er ekki sátt við þetta metnaðar leysi á msn ég veit sko alveg hvenær þú ert að vinna. />

En ég er búin að vera að spá í að færa mig yfir á 123.is en Brynja frænka (atvinnubloggari sko) mælir hiklaust með þeirri síðu en þar get ég bloggað og sett inn allar myndir og læst öllu þannig að aðeins valdir geti komið og skoðað. Það kostar 3000 kr á ári þannig að ég ætla að salta það þangað til allavega ég er búin að kaupa ljós hahahah en þangað til verðið þið bara að verma hjarta ykkar með því að hugsa um mig í stað þess að skoða nýjar myndir.

Ég vil líka senda opinbert þakklæti til hennar Brynju en hún tók sér pásu frá sínu hrikalega spennandi og busy lífi og breytti allri ferilskránni minni yfir á ensku:haha: :haha: en ég er orðin svo hrikalega riðguð í skrifi ensku að ég get örugglega ekki skirifað "ég heiti" :lol: (þess ber líka að geta í heimildum að upprunalega skráin er gerð af Sædísi og Ómari :lol: )

En ég fór í sturtu í gær sem er kannski alveg afrek út af fyrir sig neeeeema hvað að það er svona situ baðkar/sturta hérna s.s. þú getur ekki legið í baði heldur sitið í baði svo það er svona sæti þar, og ég var búin að vera í sturtu og það var svo kósý þannig að ég ájvað að setja tappan í og setjast aðeins og það var svoooooo kósý.:haha: en svo tek ég tappan úr og ætla að fara upp úr þá sé ég bara allt á floti á gólfinu og það er að koma upp úr niðurfallinu á gólfinu og ég bara WHAT og hendi tappanum í og kalla á Sigga, heirðu þá er niðurfallið svona lélegt hérna að ég varð að hafa tappan svona smá upp úr svo að lítið læki niður og Siggi þurfti að segja mér hvort að ég væri að láta leka of hratt eða ekki, þetta hefur verið frábær sjón ef einhver hefði komið inn :lol:

Eitt annað nýtt ég fór í gær í fyrsta skipti ein út í búð og talaði meira að segja dönsku. En ég sagði s.s. unskyld men har du pepperoni en það þýðir afsakið en áttu pepperóní ( bara svona ef þið skylduð ekki) />

Ég held að það sé ekkert annað nýtt svo sem þannig að þangað til í næsta stríði... />

Hilsen fra Horsens />


» 10 hafa sagt sína skoðun

14.09.2008 16:09:40 / honeybonn

Fyrsta DK Bloggið

Jæja þá er komin vika síðan ég kom en ég stoppaði hjá Þórey systir í 4 daga og það var algjört æði :haha: Við fórum út um allt og skoðuðum þessa helstu túristastaði og borðuðum danskar pulsur:haha: Eins fékk ég að dúllast alveg fullt með Daníel mér til mikillar gleði :haha::haha:
Svo kom ég til Horsens seinni partinn á fimmtudag og fékk þá loksins að sjá híbíli mitt fyrir næstu árin og ég get ekki sagt að það hafi verið hoppað af gleði :s en það er s.s. ekki ljós inni í svefnherbergi né inni í stofu og það er bara ekkert gert ráð fyrir loftljósum :o En við þurfum að reyna að fjárfesta í nokkrum lömpum svo að hægt sé að t="on">lace w:st="on">geralace> eitthvað inni í stofu eftir að það dimmir (kl 7) annað en að hanga í tölvunni og horfa á TV . En það sem búið er að kaupa hérna inn er rúm, svefnsófi, PÍNULÍTIÐ sófaborð og svo sýnishorn af hillu undir TV :$ Við eigum ekki einu sinni stóla. En Siggi er glaður þar sem að hann fær þá að borða fyrir framan TV :lol:. En á föstudaginn fórum við á skólabarinn en hann er án djóks í 1 mín fjarlægð 8| s.s. hinum megin við götuna, en það er ódýrara að kaupa bjór þar en úti í búð 8| Svo í gær þá var bara svona leti dagur hjá okkur þar sem að við bara kúrðum allan daginn og horfðum á TV ekkert smá næs og alveg komin tími á svoleiðis hjá okkur :haha:
Svo í dag fórum við til Árhus til hans Elvars en við vorum að fara með örbylgju ofnin hans til hans því að þegar að hann var að flytja þá gat hann ekki tekið allt dótið sitt með sér ;) Svo erum við búin að taka létta taki til syrpu (alveg hrikalega spennandi) og sytjum núna hlið við hlið í tölvunni gg spennandi það líka :lol:
En ég er búin að taka fullt af myndum en ég á eftir að skoða gmail síðuna betur og sjá hvernig þetta er og þá get ég deilt með ykkur öllum 3 sem lesa þetta allt það sem ég sé :haha:
/>

En ætla að fara að pirra hann Sigga smá og elda svo mat
Later :haha: />


» 13 hafa sagt sína skoðun

10.08.2008 13:31:56 / honeybonn

Lítið blogg

Þá er búið að pakka og afhenda íbúðina, og ekki laust við mikinn söknuð þar.:cry: Siggi fór með Norrænu og ferðin gekk bara vel. Hann hringdi spes í mig til þess að segja mér að það væri verið að selja sænskt um borð og gaurinn ekkert smá ánægður með það. :haha: />

Ég er búin í þessari aðgerð og ég er bara fín lítill sársauki svona yfirleitt. Læknirinn segir að ég megi líklega fara út í vikunni 18-22 ef allt gengur vel en ég er að spá í að fara í vikunni 25-29:s og fljúga þá til köben og vera smá hjá Þórey systir og Daníel og auðvita Gísla líka. Ég er í kef núna hjá tengdó og verð fram á þriðjudag en þá þarf ég að fara aftur til Dr. vonum bara að það eigi eftir að fara vel.8| />

Veit eilla ekki hvað er búið að ske meira nema þá......:o />

Emil og Þóra eignuðust prinsessu á þriðjudaginn síðasta hún var 16 merkur og alveg hrikalega sæt.  Við fengum að fara og kíkja því að Siggi var nottla að fara daginn eftir eins með Mása og Evu Dís. />

Það gat bara ekki komið ný færsla án þess að allavega eitt barn væri búið að fæðast. :lol: />

En held að ég sé ekki að gleyma neinu...:) />


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.07.2008 14:47:50 / honeybonn

fyrirsögn...

Núna erum við á fullu við að pakka og þess háttar leiðindi />

en við eigum að afhenta íbúðina um mánaðarmótin sem eru bara eftir 3 daga!!!!8| />

> />

Það er svo loksins komin dagur á aðgerðina en hún verður 080808 og auðvita þurfti það að vera daginn eftir að Siggi fer.:cry: />

> />

Veit ekkert hvað ég á að gera um versló þar sem að það eru flestir að fara út úr bænum en það lítur út fyrir að ég og Siggi verðum ein eftir hérna í borginni allavega í mínum vinahóp...:$ />

> />

Þórey, Gísli og Daníel Elí komu til landsins á mið í síðustu viku og þvílík gleði!!! Ég er bara alveg ástfangin af Daníel og ég var svo heppinn að ég fékk að passa prinsinn frá kl 6 á sunnudagsmorgun til kl 16 og það var bara tóm hamingja. Enda vanur passari á ferð.:lol: />

> />

Ég er svo víst líka hætt að reykja en ég hætti því 2. júlí og það hefur bara gengið eins og í sögu eða ég er allavega ekki ennþá farin að reykja aftur...:o />

> />

Já svo er  Morten orðin pabbi en hann og Hanna eignuðust prins 12. júlí og hann er á við nokkra mánaða gamalt barn, enda ekkert skrítið miðað við stærðina á pabbanum.:lol: />

> />

Á planinu er sem sagt að flytja, vera “heima” um versló, Skírn og skírn, Siggi fara, fara í köku til hennar Írisar minnar, drekka fullt með Sædísi, djamma fullt með Guddu, djamma svo meira með Elín, fara til Diddu og skoða prinsessuna og rökræða við Samúel og borða svo meiri köku með Írisi, aðgerð og svo fer ég út. Og svo reyna að vera eins mikið með fjölskyldu og vinum... />

>

En verð að fara að pakka svo að Siggi verði ekki alveg tjúll þegar að hann kemur heim og sér að prinsessan er nánast ekkert búin að gera í dag />


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.07.2008 01:00:43 / honeybonn

ÉG ER KOMIN HEIM!!!!!

Hamingjudagar eru afstaðnir þannig að það er engin hamingja á næstunni:$ En Siggi kom og vá hvað ég var glöð að sjá strákinn alveg réð mér ekki fyrir kæti!!!! Það komu líka nokkrir ungir ættingjar  og þar á meðal  var núsi bróðir og ég var líka alveg svakalega glöð að sjá hann:haha:.
Það var leiðindaveður alla helgina og MJÖG kalt og vá hvað ég hefði ekki viljað vera í tjaldi!!! Það skal tekið fram að það hafði varla hreifst hár á hausnum á mér fram að þessari helgi svo gott var veðrið búið að vera!!! En ég og Siggi fengum semsagt hús til að vera í sem var rosalega næs nema þá um laugardagsnóttina var líka fjölskylda í húsinu með "ung" börn sem höfðu alveg einstaka unun af því að láta bergmála í tómu húsinu kl 9 um morguninn :evil::evil::evil: En Siggi svaf eins og steinn eins og venjulega.
En við fórum semsagt á ballið kvöldið áður og þar hitti ég nokkra stráka sem ég hafði verið með í skóla og ekki suma ekki séð í 9 ár 8| en það var gaman ásamt því að það kom líka upp smá drama eins og við var að búast en það lagaðist allt og næstum allir urðu sáttir :d

Svo tók við hið daglega líf í þessa einu viku sem eftir var og ég verð að viðurkenna það að ég var næstum búin að venjast þessum stað en um leið og ég kom suður og fór í kringluna sá ég að þetta var bara stundarbrjálæði.8|8|8|

En daginn áður en ég kem suður þá koma ég og Brynja frænka heim úr vinnunni rétt rúmlega 4 þreyttar en kátar en þá tekur á móti mér vond lykt og ég nefni það við Brynju og held þá að glugginn sé lokaður eða þá eitthvað að mygla í ruslinu....:$

En þá rek ég augun í poll á gólfinu og ég bara WTF hvernig komst pollur á gólfið??? Þá fylgja augun pollinum (Soldið dramatískt hjá mér heheheheh) og þau staðnæmast við geymsluna. Þá hafði semsagt hitakúturinn sprungið á meðan við vorum í vinnunni en í sveitinni eru svona hitakútar eins og í sumarbústöðum því það er ekkert heitt vatn í jörðinni.

En allavega þá var allt blautt í geymslunni og þar á meðal nýju fínu töskurnar mínar frá ömmu og svo allt jólaskrautið hennar Brynju sem hún sjálf var búin að vera að föndra síðan hún var smá stelpa og svo líka skrautið frá Dísu ömmu.:cry:

Talvan hennar Brynju var líka á stofugólfinu þannig að hún er líka ónýt en sem betur fer var mín upp í sófa því annars væri ég ennþá grenjandi. En við tók að týna kassana út í garð (Brynja gerði það) eftir að kall var búin að koma og losa alveg af kútnum sem var eftir svo að það færi ekki líka á gólfið. Þá tók við margra klukkustundarvinna við að þurrka upp alla bleytuna á gólfinu sem var engin smá bleyta. En við vorum að klára um miðnætti:$

Svo þegar að þetta var loksins að klárast þá byrjar nottla að rigna þannig að aumingja Brynja varð að hendast út til að ná í alla kassana og henda þeim inn í herbergið sitt, þó að sumt hefði varla getað blotnað meira.... En á meðan var ég að reyna að pakka niður því að við ætluðum að leggja af stað strax kl 4 daginn eftir suður (sem gekk auðvita ekki)

 En núna býr Brynja ekki lengur heima hjá sér og þarf brátt að flytjast í sumarbústað því að það þarf að  rífa upp allt parketið sem er ónýtt og einnig þarf að rífa allavega einn vegg niður.

Síðan ég kom heim er ég nottla búin að fara og hitta familíuna og ég er líka búin að fara í smáralindina og kringluna og svona 10 sinnum í bónus (ég fæ alltaf jafn mikið víðáttubrjálæði þar inni núna) Svo er ég búin að hitta sumar vinkonur en sumar treysti ég mér ekki alveg í að fara í heimókn til strax. Ekki alveg til í að segja hversvegna strax ætla að láta reyna á í smá stund en ég sakna þeirra samt alveg roooooooooooossssssssssaaaaaaaaaa .

Á planinu fyrir næstu daga er svo hátíð í vinnunni hans Sigga á föstudag og svo ammli/útskrift hjá Stjána á lau.

Ég held að ég sé ekki að gleyma neinu, annars kemur það bara næst.


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.06.2008 11:22:39 / honeybonn

Jæja

Ég vil byrja á því að óska Diddu og Gumma til hamingju með Prinsessuna en hún fæddist rétt fyrir kl 11 í gærkveldi og var 18 merkur og 52 cm :d


Hafið þið tekið eftir því að ég er búin að skrifa 3 færslur á stuttum tíma og það eru ný börn í hverri þeirra :lol:

Þórey systir er að hugsa um að koma 23 júlí og vera þá í 3 vikur og ég get ekki beðið!!! Ef ég kemst í aðgerðina í júlí þá fer ég kannski bara út með þeim þegar að þau fara til baka sem á þá eftir að auðvelda þetta rosalega:d

Annars hef ég lítið gert annað en að vinna nema þá að ég fór í fjöruna um daginn og týndi steina og svo kvöldið eftir þá máluðum við Brynja frænka þá fagur rauða en við búum sem sagt í rauðahverfinu á hamingjudögum. Ég ætti kannski að spyrja Brynju hvort að þetta rauðahverfi svipist nokkuð til samaheitahverfisins í Hollandi 8|8|8|


En svo fór ég líka alla leið inn í Bjarnafjörð í sund í síðustu viku og ætlaði bara að dúlla mér ein og fór í sund og það var allt í key en mér fannst eitthvað svo lítið í lauginni en sá að það var vatn að renna í hana þannig að ég bjóst ekki við að þurfa að bíða lengi eftir því að hún myndi fyllast. NEI korteri seinna fór ég að spá í þessu aftur og sé þá að það er verið að taka vatnið úr henni en ekki bæta í!!!!! þannig að ég keyrði alla þessa leið (helmingurinn moldar og malarvegur) til þess að fara í sund í korter!!!! ekki alveg sátt þá sko.

Hamingju dagar eru svo núna næstu helgi og ég verð í fríi alla helgina og einnig á mánudeginum sem er bara næs :haha: Magnús bróðir ætlar að koma ásamt fleiri ungum ættingjum og Siggi ætlar líka að reyna að koma sem er X-tra næs. En við erum búin að fá hús hérna sem er tómt en það er annaðhvort það eða að tjalda hérna úti í garði en það verða allavega 5 tjöld þar fyrir og ekki er garðurinn stór.

Ég held að það sé ekkert meira í bili nema þá að ég kem eftir 14 daga


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.06.2008 22:34:08 / honeybonn

Ein fyrir pabba

>Það er komið nafn á litla prinsinn og heitir hann Daníel Elí Gíslason og hann er alveg jafn fallegur og þegar að ég sá hann fyrst en vandamálið er að hún systir mín er ekki alveg sú duglegasta við að setja inn myndir af honum :cry:
>

Svo vil ég óska Gunnhildi og Stebba til hamingju með litlu prinsessuna en hún fæddist núna á laugardaginn 14. júní. En Gunnhildur var búin að vera með hríðir í um 2 tíma við hliðina á Sigga í matarboði án þess að neinn fattaði en hún kom svo um kl 2 um nóttina :haha:

Jæja það var hringt í Sigga og honum sagt að við værum kominn með íbúð úti og við bara frábært og tóm gleði en svo var hringt aftur daginn eftir og sagt að hún losni ekki fyrr en í des þannig að við erum aftur kominn í vesen en vonandi reddast það :$

Ég er búin að gera eitthvað annað en að vinna hérna á Hólmavík núna en ég er búin að vera með Brynju heima hjá Kristjönu vinkonu hennar en hún var að flytja alla leið ofar í götuna. Svo fór ég í sund á lau í fyrsta skiptið í um 11 ár og það var eilla bara fínt. Þannig að á sun fóru ég og Brynja í Bjarnafjörðinn og fórum í sund þar en sundið er við félagsheimilið sem er rétt hjá bústaðnum sem var í eigu Dísu mömmu hans Magga pabba en ég hef ekki komið þangað síðan að ég var krakki. Við fórum svo í heimsókn í sveit þarna á móti og það var alveg rosa gaman :d við ákváðum svo að fara til Drangsnesar og fórum lengri leiðina og stoppuðum í einni fjörunni á leiðinni og tókum FULLT af myndum en í öllum fjörunum voru endalaust af rekaviðadrumbum og ég hef bara aldrei séð annað eins. En svo fórum við til Drangsnesar og jiiiiiiiii það eru svona 20 hús þar!!!!

Þar stoppuðum við á kaffihúsi og fengum okkur að borða og já sumu hefði mátt sleppa.

Svo fór ég líka á Kaffi riis á laugardagskvöldið en þessi staður er kallaður kaffi lokað af heimamönnum en hann er í raun bara opinn á laugardögum og nánast ekkert á veturna.  Svo er hægt að kaupa Pizzu þar á sumrin en ekkert á veturna þannig að ég þig langar í pizzu þá óheppinn þú!!!!

En allavega þá fór ég þangað og þetta er eins og slappur dagur á kaffi Duus eða eh álíka :s þannig að ef ég færi ekkert út í sumar þá myndi ég missa af akkúrat ekki neinu held ég...

Ég held að það sé ekki neitt meira enda er ég á Hólmavík en ekki einhverri stórborg þar sem eitthvað er að gerast á hverri mínútu :/

Enn svo eru ekki nema 21 dagur í mig núna !!!! Eru ekki örugglega allir að deyja úr spenningi??????


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.06.2008 19:44:18 / honeybonn

Langt síðan síðast

Jæja mikið búið að gerast síðan síðast...

Ég er orðin stúdent og ég þurfti ekki að taka endurtökupróf og ekki að fara í sumarskóla eins og ég var búin að gera ráð fyrir sem er bara snilld :d Og ég er rosalega ánægð með einkunnirnar mínar:d

Núna er ég flutt á Hólmavík til Brynju frænku þar sem að ég verð að vinna á heilbrigðisstofnun Hólmavíkur en ég er RÁÐSKONA!!! Ég er búin að vinna í 2 daga núna og allt gengið vel þó að ég sé að vísu ekki að venjast þessu smábæjar lífi þar sem allir þekkja alla og vita allt um alla :s


Annað í fréttum þá er Þórey systir átti prinsinn sinn 06.06.08. allt gekk vel og var hann 16 merkur og 48cm, p.s. Þórey þá er ég ennþá að bíða eftir myndum:d:d:d:d


Við erum líklega búin að finna leigjendur fyrir íbúðina og skulum við vona að allt eigi eftir að ganga vel í þeim málum.


Ennþá er ekki víst hvenær ég kemst út til hans Sigga míns en ég fæ vonandi svör frá Dr. á þriðjudaginn þegar að ég kíki á hann en Siggi fer 31. júlí :cry:
. Þannig að ég þarf að búa inni hjá einhverjum og ég verð bíllaus í þokkabót þannig að ef einhverjum langar til að vera einkabílstjóri minn í smá tíma þá má hann endilega hafa samband við einkaritara minn :haha:


Svo er ég víst að fara á “djammið” í kvöld en það er semsagt einn staður hérna sem er nánast ekkert opin á veturna en núna ætti hann að vera opinn um helgar en þetta er bæ þe vei kaffihús eiginlega þannig að við munum sjá hvernig það er. En ég verð víst edrú þar sem að ég er að fara að vinna í fyrramálið kl 8 og mun þá líka koma snemma heim.


Já svo kem ég suður á mánudag en  fer aftur á þriðjudag þannig að ég fæ smá tíma til að knúsast og kúra með Sigga mínum og ég eilla get ekki beðið sko :haha::haha::haha:

 

Veit ekki hvað ég á að segja meira í bili þannig að bæ

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.01.2008 01:27:25 / honeybonn

Mana þig til að lesa í gegn og ekki glotta pínu

Þú ert 90´s barn ef þú:

 

Þú getur klárað þessa setningu [ice ice _ _ _ _ ]

Þú manst eftir því þegar það var ennþá spennandi að vakna á laugardagsmorgnum til að horfa á barnaefnið...

Þú færð ennþá "urge" til að segja "NOT" á eftir næstumþví öllu

Það var gert út um málin með "steinn skæri blað" eða "ugla sat á kvisti"...

Þegar lögga og bófi var daglegt brauð

Þegar við fórum í feluleik þangað til við gátum ekki meir

Þegar við vorum vön að hlýða foreldrum okkar...

Þú hlustaðir á útvarpið allan liðlangan daginn til að bíða eftir uppáhaldslaginu þínu, til að taka það upp á kasettutækið..

Þú manst eftir því þegar Super Nindendos og Sega Genisis urðu vinsælir

Þú horfðir alltaf á America's Funniest home videos

Þú horfðir á Home Alone 1, 2, og 3 og reyndir að gera sömu trikk

Þú manst eftir því þegar Jójó voru kúl

Þú horfðir á Batman, Aladín, Turtles og Pónýhestana...

Þú manst eftir sleikjóunum sem voru á hring til að hafa á puttanum..

Þú manst þegar það áttu ekki allir geislaspilara

Þú bjóst til gogg þegar þú varst lítill...

Þú áttir tölvugæludýr

...eða Furbie

Þú hefur ekki alltaf átt tölvu, og það var töff að vera með Netið

Og Windows '95 var best

Michael Jordan var aðal hetjan..

Kærleiksbirnirnir

Þú safnaðir lukkutröllum

Og áttir vasadiskó

Þú kannt Macarena dansinn utanað

Þú veist af hverju 23 er kúl tala

Áður en að Myspace varð vinsælt,

Áður en Netið kom og enginn vissi hvað sms var..

Áður en ipod kom til sögunnar

Áður en PlayStation 2 og Xbox voru til,

Þegar strigaskór með blikkljósum voru málið

Og þú leigðir spólur, ekki dvd,

Og það var eiginlega enginn með símanúmerabirti

Og þegar við hringdum í útvarpið til að reyna að fá uppáhalds lagið okkar spilað til að hlusta á í vasadiskóinu

Áður en við áttuðum okkur á því að allt mundi breytast

Hver hefði getað ímyndað sér að við myndum sakna þessara tíma!


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 410 dögum
Sædís kemur til mín!!!!!
Klukkan
RSS tengill
Ef þér leiðist :o)
Myndbönd
Dagsetning
19. mars 2010